ofbeldishringurinn

Hvað er heimilisofbeldi?

 
 
 

Birtingarmyndir heimilisofbeldis geta verið nokkrar og það er ekki alltaf um líkamlegt ofbeldi að ræða. Heimilisofbeldi gerir ekki greinarmun á stétt, kynþætti eða fjárhag.

Konur eru að langstærstum hluta þolendur en geta líka verið gerendur.

Rannsóknir benda til að um það bil 3% þolenda heimilisofbeldis séu karlar en aðstæður þeirra hafa lítið sem ekkert verið skoðaðar hér á landi (Aðgerðaáætlun Stjórnarráðsins). 

Rannsóknir sýna að 86% gerenda séu karlmenn (en það þýðir ekki að 86% karlmanna beiti ofbeldi!). 

Hér er skilgreining á heimilisofbeldi, af heimasíðu Kvennaathvarfsins:

Um er að ræða ofbeldi sem einstaklingur verður fyrir af hálfu einhvers sem er honum nákominn, skyldur eða tengdur, eins og maki, barn, foreldri, barnsfaðir, systkini eða forráðamaður. „Maki“ getur verið núverandi eða fyrrverandi eiginmaður/eiginkona, kærasti/kærasta eða sambúðaraðili. Þolandi og gerandi þurfa hvorki að búa saman né vera gift til að ofbeldið flokkist sem heimilisofbeldi. Heimilisofbeldi þarf heldur ekki að vera bundið við heimili geranda eða þolanda, það getur átt sér stað í sumarfríi erlendis, í útilegu eða í bíl.

Sérstaða heimilisofbeldis felst í því að gerandi og þolandi tengjast nánum böndum sem gerir ofbeldið enn sársaukafyllra en ella, auk þess að gera þolanda erfiðara um vik að slíta tengslum við gerandann. Heimilisofbeldi er skilgreint sem kynbundið ofbeldi en það er þegar ofbeldi er beint gegn þolanda vegna kynferðis viðkomandi eða ofbeldi þar sem yfirgnæfandi meirihluti þolenda er af tilteknu kyni.

 

helstu birtingarmyndir heimilisofbeldis

Andlegt ofbeldi

  • Öskrar á þig.

  • Uppnefnir þig.

  • Gerir lítið úr þér.

  • Hótar og/eða ógnar þér.

  • Segir þig ruglaða/n eða geðveika/n

  • Beitir gasljósun (gaslighting).

  • Kennir þér um hegðun sína og líðan.

  • Einangrar þig frá vinum og fjölskyldu.

  • Treystir þér ekki til að taka ákvarðanir.

  • Lætur þér líða eins og þú komist ekki úr sambandinu.

  • Treystir þér ekki í kringum aðila af hinu kyninu.

  • Fylgist með ferðum þínum – hefur eftirlit með þér.

  • Kemur að tilfinningu hjá þér um yfirvofandi ofbeldi.

  • Gagnrýnir þig og/eða gerir lítið úr afrekum þínum eða vinnu.

  • Lætur þér líða þannig að þú þurfir virkilega á gerandanum að halda.

  • Er móðgandi/særandi undir áhrifum áfengis/fíkniefna.

helstu birtingarmyndir heimilisofbeldis

Andlegt ofbeldi (framhald)

  • Notar áfengi/fíkniefni sem afsökun til að segja móðgandi/særandi hluti.

  • Áreitir þig stanslaust t.d. með skilaboðum, símhringingum og/eða heimsóknum.

  • Ætlar að „láta þér eitthvað að kenningu verða“ með því t.d. að banna þér að leita aðstoðar eftir rifrildi.

  • Niðurlægir þig og gerir grín að þér, hvort sem er í fjölmenni, fyrir framan vini/fjölskyldu eða þegar þið eruð tvö.

Líkamlegt ofbeldi

  • Slær, kýlir, lemur, klórar, bítur, skallar, klípur, sparkar í, rífur í hár, hrindir, brennir, drekkir, kæfir, tekur kverkataki.

  • Sparkar/kýlir í hluti, hendir og/eða skemmir hluti.

  • Kemur í veg fyrir að þú getir farið og/eða komið þegar þú vilt.

 

Kynferðislegt ofbeldi

Kynferðislegt ofbeldi getur verið í formi óumbeðinnar innsetningar (um leggöng, endaþarm og/eða munn), eða snertingar (strjúka, kyssa, sleikja, sjúga eða nota hluti) á einhverjum hluta líkamans. Ofbeldið getur birst sem:

  • Kynferðisleg árás; eins og að þvinga viðkomandi til að stunda með sér einhvers konar kynmök, hvort sem um er að ræða varin eða óvarin.

  • Kynferðislegt áreiti; getur verið bæði andlegt og líkamlegt áreiti af kynferðislegum toga.

Dæmi um kynferðislegt ofbeldi í nánu sambandi getur verið ef maki þinn:

  • Gerir þig út í vændi.

  • Krefst kynlífsathafna sem þú kýst ekki.

  • Lætur þig stunda kynlíf með (mörgum) öðrum.

  • Notar líkamlegt afl, vald, samvisku eða neyð þína til að eiga við þig kynmök.

Það telst kynferðislegt ofbeldi ef annar aðilinn ákveður að stunda kynmök með maka sínum ef makinn er drukkinn, undir áhrifum fíkniefna, sofandi, hræddur við að neita um þátttöku í kynlífi, of gamall, of ungur eða er háður þeim sem krefst kynmaka.

 

 

 

 

 

Stafrænt ofbeldi

Stafrænt ofbeldi

Dæmi um stafrænt ofbeldi í nánu sambandi getur verið ef maki þinn:

  • Skráir sig inn á samfélagsmiðla á þínu nafni.

  • Stýrir því hver má vera vinur þinn t.d. á Facebook og hver ekki.

  • Er með upplýsingar um staðsetningu þína, t.d. í gegnum símann eða öpp sem sýna staðsetningu símans (Snapchat o.fl).

  • Stýrir því hverja þú mátt tala við gegnum samfélagsmiðla eða í síma.

  • Sendir þér og þrýstir á þig að senda sér skilaboð af kynferðislegum toga.

  • Þrýstir á þig að senda sér nektar-/kynlífsmyndir og/eða myndbönd af þér.

  • Skoðar símann þinn reglulega, skoðar myndir, skilaboð og símtalasögu.

  • Sendir þér nektar-/kynlífsmyndir og/eða myndbönd af sér, gegn þínum vilja.

  • Sendir stanslaust skilaboð gegnum síma/samfélagsmiðla og/eða hringir stanslaust.

  • Hótar að tala illa um þig eða bera út sögur t.d. í gegnum síma eða samskiptaforrit.

  • Heimtar að fá lykilorð þín til að geta skráð sig inn á samfélagsmiðla eða bankareikninga.

  • Hótar að birta opinberlega nektar-/kynlífsmyndir og/eða myndbönd af þér, eða senda til ættingja, vina eða vinnufélaga.

 

Fjárhagslegt ofbeldi

  • Bannar þér að vinna.

  • Tekur launin þín af þér.

  • Fer fram á að launin þín séu lögð beint inn á hans reikning.

  • Skammtar þér peninga.

  • Skráir skuldir á þig en eignir á sig.

  • Kemur í veg fyrir að þú veljir þér starfsframa.

  • Eyðileggur persónulega muni þína viljandi.

  • Heldur upplýsingum um stöðu fjármála frá þér.

  • Ráðstafar sameiginlegum fjármunum í óþarfa eins og áfengi/fíkniefni eða eigin áhugamál án þess að ráðfæra sig við þig.

 

Ógnandi hegðun, stjórnun eða þvingun telst líka til heimilisofbeldis. 

Á eftirfarandi síðum er hægt að fá meiri upplýsingar um hvernig hægt er að þekkja ofbeldissamband: