Afleiðingar
Langtímaáhrif heimilisofbeldis á heilsu þolanda eru margskonar og geta komið fram þó ekki sé um líkamlegt ofbeldi að ræða.
Hvað er heimilisofbeldi?
Heimilisofbeldi er ekki alltaf líkamlegt ofbeldi og karlmenn eru ekki alltaf gerendur. Ofbeldið getur verið andlegt, kynferðislegt, stafrænt og fjárhagslegt.
Úrræði
Til að fá ráðgjöf eða aðstoð er mikilvægt að leita til fagaðila. Hér eru talin upp helstu úrræði sem eru í boði.
Langtímaáhrif heimilisofbeldis
Samkvæmt fjölmörgum rannsóknum, íslenskum og erlendum, er búið að greina helstu langtímaáhrif heimilisofbeldis. Þessar afleiðingar geta líka komið fram þó ekki sé um líkamlegt ofbeldi að ræða.
Heimilisofbeldi er ekki einkamál
Breytum þessu saman - Skiptu þér af
Ef þig grunar að manneskja sem þú þekkir búi við heimilisofbeldi, er hægt að tilkynna það til lögreglunnar í síma 112. Eða fá ráðgjöf um rétt viðbrögð meðal annars hjá Kvennaathvarfinu og Bjarkarhlíð.
Ef um neyðartilvik er að ræða á alltaf að hringja í 112. Ef þú ert ekki viss hvort þetta sé neyðartilvik en grunar það, hringdu samt í 112.
Ef börn eru á heimilinu ber fólki skylda til að tilkynna það til Barnaverndarnefndar eða 112.
Þolendur eru ekki líklegir til að biðja um hjálp að fyrra bragði en munu þiggja hana.